30.11.2008 | 03:47
Vestrið eina
Var nú ekki betur að mér en svo að ég hélt þetta væri saga frá Vestrinu í henni Ammríku. Svo reynist höfundurinn vera írskur og setur persónunum ótrúlegustu gullkorn í munn í ómetanlegri sögu.
Leiksvið og lýsing flott. Hljóð og tónlist féllu eins og flís við r.... við leikverkið.
Til að kóróna allt var leikurinn í efsta gæðaflokki og annar aðalleikarinn flokkast örugglega undir: Stjarna er fædd" hinn er þegar stjarna. Tveir aðrir fengu ekki nógu bitastætt til að moða úr
Frábært kvöld yfir hráslagalegri frásögn með þykkum svörtum húmor.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Ég ætla einmitt að sjá þetta verk. Hef heyrt að það sé vandað.
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 1.12.2008 kl. 14:17
Góða skemmtun, ja, þetta er ekki gaman en sannarlega skemmtun (skv. uppruna þess orðs < skammur > skemmtir = gerir tímann skamman = skemmtilegt.
Skil ekki litla aðsókn. Það er hálftómt/hálffullt. Kannski á fólk ekki peninga eða er ekki í neinu stuði til að sækja leikhús.
Beturvitringur, 1.12.2008 kl. 22:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.