Þarf ekki að fara að koma skilaboðum til þessara útlendinga um að þeir skuli hætta að reyna að draga okkur á asnaeyrunum, - það séu ótal Íslendingar sem sjái um þá deild?
"i am orphan i need yr help to transfer my father wealth pls reply me urgent"
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkar: Dægurmál, Spaugilegt, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
hvar fær þetta fólk e-mailið okkar ég fæ marga pósta á dag!
Hólmdís Hjartardóttir, 5.12.2008 kl. 00:47
Við höfum DO og klanið hans, við þurfum ekki að láta stela af okkur frá útenskum svindlurum líka
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 5.12.2008 kl. 01:04
Það er víst ekki nokkur einasti vandi að gramsa út netföng. Ég fæ nú ekki nema 2-3 á dag, beiðnir um að fá að leyfa mér að græða stórsummur, sbr. eymingjans munaðarleysingjann hér að ofan.
Svo fæ ég a.m.k. annað eins um að ég hafi unnið risafjárhæðir í happdrætti eða vöruverðlaunaeitthvað. Frábært að maður skuli ekki þurfa að kaupa miða og fá samt vinning. Ætli JÁJ og snáðarnir 13 hafi fundið þetta upp?
Að ógleymdum blikkandi auglýsingum um Viagra, typpastækkanatúbur, brjóstalyftingareitthvað og alles (Virðist eitthvað vanta í samhæfða kyngreiningu hjá þeim)
Beturvitringur, 5.12.2008 kl. 03:16
Já, Jóna, við þurfum hvorki að flytja inn ræningja né annan ribbaldalýð og hér er líka alveg nóg af siðlausum sjálfsaðsköfurum.
Beturvitringur, 5.12.2008 kl. 03:18
Sem betur fer fæ ég yfirleitt ekki spam póst.
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.12.2008 kl. 03:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.