Kvikindislegur - óábyrg færsla - enda felubloggari (*-*)

 Lýtalækningar

Íslenskur lýtalæknir var staddur á ráðstefnu erlendis með kollegum sínum. Eftir langa og stranga dagskrá ráðstefnunnar héldu ráðstefnugestir á öldurhús og gerðu sér glaðan dag. Eftir því sem líða fór á kvöldið og nóttina þynntist hópurinn og lokst sátu einungis þeir þaulsetnustu eftir.
Þegar þeir höfðu ekkert meira að tala um fóru þeir að segja hetjusögur af þeim afrekum sem þeir höfðu unnið á skurðborðinu.

Einn Bretinn sagði sögu af því að hann ásamt teymi sínu hafi tekið á móti sjúklingi sem missti hendina í prentsmiðju. Á sjúklinginn græddu þeir nýjan handlegg, lófa og fingur og eftir að hann kom til starfa aftur varð hann svo góður og öflugur verkmaður að hann vann á við 4 og því fóru þrír á atvinnuleysisskrá sem áður störfuðu hjá fyrirtækinu.

Rússnenskum lækni fannst ekki mikið til þess koma og sagði frá manni sem lent hafði inní kjarnaofni. Þeir fengu ekkert annað en hárið inná skurðborðið til sín, græddu á það höfuð, búk og útlimi. Þessi maður varð svo góður verkmaður þegar hann snéri aftur til starfa að hægt var að segja upp heilli vakt í kjarnorkuverinu, 9 manns fóru á atvinnuleysisskrá.

Íslenski læknirinn sagði iss við þessari sögu. "Ég var einu sinni staddur niðrí Austurstræti og fann rosalega vonda prumpulykt. Ég veiddi hana í poka og brunaði með hana uppá Borgarspítala og skellti henni á skurðborðið. Við græddum á þetta búk, höfuð, útlimi og enduðum með að setja krullur ofaná þetta allt saman. Úr þessu varð Davíð Oddsson og hann er á góðri leið með að setja alla þjóðina á atvinnuleysisskrá".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

dragðu fyrir alla glugga og gakktu með sólgleraugu

Hólmdís Hjartardóttir, 21.11.2008 kl. 01:50

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 21.11.2008 kl. 01:53

3 identicon

Er Davíð þá læknismistök?

Nefródíta 21.11.2008 kl. 03:52

4 Smámynd: Beturvitringur

Nefródíta. Nú kemur enn og aftur að sekt eða sakleysi. Var það e.t.v. lækninum að kenna að vera að reyna að tjasla saman prumpulykt (trúi varla að ég sé að skrifa svona um lifandi mann, - reyndar mjög óvenjulegan mann, sem ætti að stunda skriftir en ekki afskriftir eigna lýðsins.

Beturvitringur, 21.11.2008 kl. 11:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband