21.8.2008 | 01:56
VIÐ verðum að taka á'ðessu! Djöfull tókum VIÐ þá vel! VIÐ unnum þá!
Veit ekkert um íþróttir, nema að maður fer í sturtu áður en farið er í sundlaug.
Nú ber svo við að ég missi lyst og fæ aukahjartslög (jafnvel sleglatif) og snert af bráðkveddu út af íslenska handboltaliðinu.
Velti oft fyrir mér; get aldrei almennilega gert mér grein fyrir meiningunni hjá t.d. feitum óálitlegum bjórvambarkörlum sem ræða fram og aftur: "Við verðum að taka þá í fyrramálið" Bíddu, þeir ætla að sitja í svefnsófanum eða letidrengnum og horfa á leikinn í sjónvarpinu (með bjór, kunni þeir við það "á þessum tíma")
Við uuuuuuuuunnnnnuuuummmm! garga þeir þegar liðið hefur staðið í ströngu við að vinna leik; þessir frábæru íþróttamenn sem ættleiddir eru af þjóðinni þegar vel gengur ("strákarnir okkar") Þessir hlunkar hafa ekki unnið í neinni íþrótt, það er handboltaliðið.
Þjóðarstoltið er að drepa mig núna og ég um það bil að ná í ættleiðingarpappírana! En ÉG vann ekki, ÞEIR eru hetjurnar "okkar".
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Þú og fjölskyldan þín ætlar sem sagt að horfa á imbann, nú eða fara til Costa del sol? ha ha ha
Ég kann vel við þig : )
Beturvitringur, 21.8.2008 kl. 04:01
Gleymdi; mikið vildi ég að þú værir sannspár. Þá ættleiði ég a.m.k. hálft liðið. Hinn helminginn bið ég að ættleiða mig.
Beturvitringur, 21.8.2008 kl. 04:04
Til hamingju með silfrið.....sem þínir ættleiddu drengir unnu sannarlega fyrir
Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 12:58
ó já, og sömuleiðis. Landið og miðin eru í vímu. Vonandi finna þeir stoltið og andann í landanum.
Beturvitringur, 24.8.2008 kl. 21:15
silfurvíma
Hólmdís Hjartardóttir, 25.8.2008 kl. 00:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.