Þeir vita það allir - m.a.s. bandaríski Búskurinn

Geðlyf hljóta nú að fara að seljast sem aldrei fyrr. Flestir að fara á taugum yfir fréttum og hrakspám. SVO HEYRIST Í LANDSINS FEÐRUM (og mæðrum?) Noh, nú ætla þeir að gera skurk!

Nú veit maður að allir kunna lausn efnahagsvandanum!! Jésss. Stuna. Andvarp... Þvílíkur léttir. Ekki kann ég neina lausn. Gott að hafa fræðinga, ráðgjafa og yfirvöld sem vita hvað gera skuli.

Ég heyri

ráðherra,

almenna þingmenn (stjórnar- og stjórnarandstöðu-)

ráðuneytisstjóra,

ráðgjafa,

stjórnmálafræðinga,

hagfræðinga,

forstjóra og

stjórnarformenn fjármálastofnana,

hagstofnun,

kauphallarmenn,

seðlabankastjóra,

viðskiptajöfra og

ég kann ekki fleiri titla og biðst velvirðingar ef einhverjar rangfærslur komu fram. Hvað með það, allir ofangreindir og fleiri til, hafa opinberað FULLKOMNA KUNNÁTTU SÍNA um hvað beri að gera til að reisa efnahagslífið við. Þetta hef ég hlustað á undanfarið. ÞÁ VITUM VIÐ ÞAÐ.

Það verður að draga úr verðbólgu

Vextir verða að lækka

Stýrivextir verða að vera raunsannir 

Verðum á  ná jafnvægi

Verðum að koma markaðnum í gang

Verðum að leggja okkur fram

Verðum að tala í lausnum

Verðum að ná verðbólgu niður

Verðum að vinna saman 

Verðum að ræða ástandið

Þurfum víðtæka samstöðu

Verðum að knýja fram aukinn hagvöxt

Atvinnuþróun má ekki stöðvast

Það verður að grípa til aðgerða

Verður að styrkja gengi krónunnar 

Verður að stefna að uppbyggingu

Verðum að vinna traust á Íslandi

Þurfum að vera samkeppnishæf og

Verðum að standast samkeppni

AÐGERÐALEYSI ER EKKI VALKOSTUR. 

 

OG? 

Er eitthvert okkar sem vissi þetta ekki? Megum við ekki ætlast til að valdir leiðtogar, embættismenn og ráðgjafar geri annað og meira en að segja okkur hvað sé að?

Værum við ánægð með lækni sem lýsti fyrir okkur þeim kvillum sem okkur hrjáðu og sendu okkur svo út' Ætluðumst við ekki til að hann reyndi einhvers konar meðferð við sjúkleikanum?

Ástandið síast inní alla, hvort sem þeir skilja eður ei.  Lítil frænka mín (nýlega 4ára) spurði mig á dögunum:  "Eru bankarnir sterkir?" Geri ráð fyrir að hún hafi heyrt þetta útundan sér og sennilega velt því fyrir sér hvort þeir hefðu krafta í kögglum.

 

Nú eru þeir lánlausu, lánsamir!

Eignalausir lífeyrisþegar hafa engu að tapa!? 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

GÓÐ

Hólmdís Hjartardóttir, 4.10.2008 kl. 10:03

2 Smámynd: Ómar Ingi

Prozack

Já það er lán í óláni að eiga lítið sem ekkert í dag

Ómar Ingi, 4.10.2008 kl. 12:17

3 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Gód grein hjá thér. Alveg sammála.

Og .... hvernig ætla their (allir titlarnir) svo ad leysa málin.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 4.10.2008 kl. 23:22

4 identicon

Já, nú treystum við á okkur sjálf þegar stertimennin eru búin að setja þjóðarskútuna á hvolf. Hinn almenni Íslendingur er sem betur fer framræktaður til að takast á við hörmungar. - eins gott!

Hanna 6.10.2008 kl. 20:12

5 Smámynd: Beturvitringur

Mér finnst eins og þessum uppskrúfuðu gullrössum hafi verið treyst fyrir eldspýtustokkum. Svo hafi þeir kveikt í einni og einni og stungið henni brunninni í stokkinn aftur. Svo þegar nota á stokkinn, eru allar spýturnar á sínum stað, en verðlausar... brunnar upp. Rosa var þetta djúpt :)

Beturvitringur, 6.10.2008 kl. 20:20

6 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

En hvað í ósköpunum hefur orðið af þér? Það vantar blogg frá þér.

Markús frá Djúpalæk, 31.10.2008 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband